Bergvík 8, 800 Selfoss
87.400.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
174 m2
87.400.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
87.200.000
Fasteignamat
91.600.000

Fasteignasalan Heimaland ehf. kynnir í einkasölu Bergvík 8, 800 Selfossi, nýtt 174,0 fm. 4 herbergja parhús í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar. http://jorvik800.is Eignin skiptist í þrjú  svefnherbergi, fataherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, gestasalerni, forstofu, þvottahús og innbyggðan bílskúr. 

ATH. Eignin getur verið tilbúin til afhendingar við kaupsamning

Nánari lýsing eignar:
Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með bárujárni og bárujárn er á þaki. Gluggar eru ál/tré gluggar, Lóð er þökulögð og mulningur er í bílaplani með steyptu sorptunnuskýli. Húsið er eins og áður sagði 174,0 fm. en bílskúr er 44,6 fm. þar af.
Gengið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi en inn af forstofu er flísalagt gestasalerni. Forstofan er opin við alrými íbúðarinnar sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhús er með góðri innréttingu og eyju. Á svefnherbergisgangi eru þrjú rúmgóð svefnherbergi en inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi. Baðherbergið er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, rúmgóðri sturtu og góðri innréttingu. Úr forstofu er gengið inn í rúmgott þvottahús með góðri innréttingu, úr þvottahúsi er innangengt í bílskúrinn sem er rúmgóður með lökkuðu gólfi og bílskúrshurðaropnara. 
Hér er um að ræða vel skipulagt parhús sem er staðsett í göngufæri við nýjasta grunnskóla bæjarins, Stekkjaskóla. http://stekkjaskoli.is

Nánari upplýsingar veitir:
Guðný Guðmundsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, sími 821-6610, [email protected] 
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskildu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Sigtún 3, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.