Tjarnarmói 13, 800 Selfoss
92.400.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
148 m2
92.400.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2016
Brunabótamat
73.600.000
Fasteignamat
81.300.000

Fasteignasalan Heimaland kynnir Tjarnarmói 13, 800 Selfossi.
Vel skipulagt, 148,1 fermetra, snyrtilegt parhús.
Rúmgóður sólpallur er við húsið með heitum potti og góðum skjólveggjum.

Um er að ræða nýlegt ( Byggt 2016 ) fjögurra herbergja parhús, staðsett í svokölluðu Fosslands hverfi á Selfossi. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með viðhaldsléttri bárujárnsklæðningu og máluðu timbri en litað bárujárn er á þaki. Lóðin er frágengin, þökulögð með rúmgóðum sólpalli og heitum potti, mulningur í bílaplani. 
Húsið er skráð 148,1 fermetrar og bílskúr er 39,8 fermetrar þar af samkvæmt fasteignamati.
Íbúðin telur samkvæmt teikningu:
Forstofu með flísum á gólfi, alrýmið samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Stofan og borðstofan eru rúmgóð með harðparket á gólfum. Eldhúsið er með rúmgóðri sprautulakkaðri innréttingu, innfeld uppþvottavél og ísskápur, ofni, örbylgjuofn, span helluborð og vifta.
Þrjú svefnherbergi eru í húsinu öll rúmgóð með harparketi á gólfum, í hjónaherbergi eru fataskápar. Baðherbergið er með innréttingu, flísum á gólfi og á veggjum, rúmgóð gólf sturta er á baði. Úr þvottahús er innangengt í bílskúrinn, flísar á gólfi. Bílskúr er rúmgóður með flísum á gólfi, Þvottavél og þurrkara hefur verið komið fyrir í bílskúr. Í enda bílskúrs er geymsla/auka salerni, geymslan getur nýst sem fjórða svefnherbergið enda er herbergið með glugga og opnanlegu fagi.

Hér er um að ræða vel skipulagða, snyrtilega og spennandi eign.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

Fasteignasalan Heimaland ehf. Austurvegur 6, 800 Selfoss, www.heimaland.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.